21.8.2010 | 20:46
Sumarið að taka enda
Sit hér við skjáinn í helli-rigningu og roki. Haustið virðist vera að taka yfir og frekar kuldalegt um að litast. Dagurinn í dag búinn að vera frábær. Fjölskyldan mætti í morgunsárið í Reiðhöllina Svaðastaði til að sýna hluta af bústofninum í "húsdýraþemanu." Séra Sandholt mætti semsagt með hluta af kvennabúri sínu og afkvæmum, dverghænufjölskylda mætti líka. Mesta lukku vakti þó títt nefndur Andrés grís, sem sýndi sínar bestu hliðar. Í næstu stíu voru mánaðar- og tveggja mánaðar gamlir grísir svo fólk gat séð hversu mikið grís stækkar á aldursbilinu eins til fimm mánaða. Minkarnir sem voru til sýnis voru afar áhugasamir um hænurnar, sem voru í beinum augnkontakt allan daginn. Kisurnar voru svo hinu megin við hænurnar, en þær héldu þó alveg ró sinni þrátt fyrir nágrannana. Nú er komið jafnvægi á milli katta og hunda í bílskúrnum. Þrennt er af hvorri tegund, þrír kettir á móti einum border collie og tveimur labradorum, en það er alveg morgunljóst hvort liðið ræður lögum og lofum á svæðinu. Kisurnar breytast óðara í "Freyjuketti" sbr. vörumerkið ef labrador nálgast. Annars átti sér stað mjög skondið augnablik um daginn. Þá mætti hér í ljósaskiptunum ugla á svæðið og ætlaði greinilega að ná sér í eins og einn kettling í matinn, svona fyrir háttinn. Vandamálið var að kettirnir voru líka á veiðum, því þeim fannst þessi fugl-asni sem sveimaði lágt yfir þeim afar spennandi og voru alveg tilbúnir að stökkva upp og grípa hann ef hann kæmi nógu nálægt!! Við vorum því í stúkusæti dágóða stund á meðan uglan hnitaði í hringi yfir kisunum og þær biðu spenntar eftir því að fíflið kæmi nógu nálægt. Að endingu gafst húsmóðirin upp áður en slys yrði og kallaði litlu tígrisdýrin inn í fyrirhafnarminni kvöldmat.
Um bloggið
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.